Björn Þorsteinsson
Rektorskjör 2025
Ég hef gegnt starfi prófessors í heimspeki við Háskóla Íslands frá árinu 2016. Tveimur árum fyrr var ég ráðinn lektor í heimspeki. Frá 2004 til 2014 vann ég ýmis störf við Háskólann, var stundakennari og vann við rannsóknir sem sérfræðingur og nýdoktor, en starfaði einnig sem aðstoðarmaður á rektorsskrifstofu og hafði sem slíkur umsjón með því að koma Háskóla unga fólksins á fót auk annarra verkefna sem náðu til Háskólans alls.
Ég bý yfir víðtækri reynslu af kennslu, rannsóknum og stjórnun innan Háskóla Íslands. Ég hef verið farsæll í starfi, vinsæll kennari og fengsæll í rannsóknum. Mér hefur verið treyst fyrir margvíslegum trúnaðarstörfum þar sem reynir á dómgreind, vandvirkni og staðfestu. Ég er mannasættir og vil að fólki líði vel á vinnustaðnum en forðast ekki að taka erfiðar ákvarðanir þegar þörf krefur.
Meðal þeirra trúnaðarstarfa sem ég hef gegnt innan Háskólans eftir fastráðningu má nefna formennsku í kennslunefnd Hugvísindasviðs og setu í Kennslumálanefnd HÍ, formennsku í fagráði Hugvísindasviðs hjá Rannsóknasjóði HÍ (Doktorsnámssjóði/Eimskipafélagssjóði) og setu í stjórn þess sjóðs, setu í Vísindanefnd Háskólans, setu í Jafnréttisnefnd Hugvísindasviðs, setu í úttektarnefnd um vinnumatskerfið sem skipuð var að frumkvæði rektors 2015 og setu á Háskólaþingi sem fulltrúi Hugvísindasviðs auk starfa sem formaður námsbrautar í heimspeki og forstöðumaður Heimspekistofnunar.
Ég hef átt því láni að fagna að taka þátt í og stýra nokkrum stórum rannsóknarverkefnum sem hlotið hafa öndvegisstyrk frá Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís) og veglega styrki frá Evrópusambandinu (Horizon 2020) og Evrópska rannsóknarráðinu (ERC). Ég nýt mín vel í þverfaglegum rannsóknum og hef starfað með vísindafólki af flestum sviðum Háskólans.
Ég er höfundur fræðibóka á íslensku og frönsku og hef birt greinar í tugatali í heimspekitímaritum og greinasöfnum, alþjóðlegum og innlendum, á íslensku, ensku og fleiri málum. Þar að auki hef ég ritstýrt fjölda bóka og tímaritshefta. Ég hef þýtt fjölmargar bækur og greinar yfir á íslensku úr dönsku, ensku, frönsku og þýsku. Heildarfjöldi verka á ritaskrá minni er kominn vel á þriðja hundraðið. Ég legg í rannsóknum mínum mikla áherslu á íslenska tungu og tel það eitt meginhlutverk Háskóla Íslands að halda úti fræðaiðkun á íslensku.
Um fræðastörf mín og afurðir þeirra vísast að öðru leyti á ritaskrá mína og ferilskrá hér á vefsíðu minni.
Nokkrir stefnu- og áherslupunktar
Meginreglur háskólastarfsins
- Akademískt frelsi er lífæð háskólans – annað og meira en innantómt slagorð.
- Jafningjaræði er lykilatriði – dreifð ákvarðanataka og ábyrgð, lýðræðisleg vinnubrögð.
- Kjarnastarfsemin er akademían – kennsla og rannsóknir – en allir þættir háskólastarfsins eru mikilvægir og vinna að sameiginlegu markmiði.
- Háskólar sem þekkingarsetur leika lykilhlutverk í baráttunni fyrir betri heimi og blómlegri framtíð mannlegs samfélags.
Háskólasamfélagið og starfsmannamál
- Starfsmannastefna þarf að vera heildræn og sanngjörn þannig að starfsandi sé með besta móti. Við erum öll í sama liði.
- Skilgreina þarf og skýra, í samvinnu við stéttarfélög, skyldur HÍ sem vinnuveitanda hvað varðar aðbúnað starfsfólks.
- Einkaskrifstofur verði í boði fyrir allt akademískt starfsfólk sem þarf á því að halda en könnuð verði sú leið að segja megi sig frá einkaskrifstofu gegn mánaðarlegri greiðslu svipað því sem tíðkast með fæðisfé.
- Stuðla þarf að því að starfsfólk taki virkan þátt í háskólasamfélaginu og að þar ríki lifandi vinnustaðamenning.
- Mikilvægt er að nemendur séu virkir þátttakendur í háskólasamfélaginu og heimavanir á háskólasvæðinu.
- Stefnt skal að því að afnema útvistun á almennum þrifum í húsnæði HÍ. Þrif verði að nýju eðlilegur hluti af starfseminni og starfsfólk sem sér um þrifin hluti af samfélaginu.
- Gæta þarf að „stofnanaminni“ innan HÍ og miðlun þess, t.d. hvað varðar ráðningarferli.
- Bæta þarf móttöku starfsfólks til muna, bæði fastráðins og lausráðins, og styrkja verkferla m.t.t. verkaskiptingar, ábyrgðar o.s.frv.
- Fjármögnun HÍ og dreifing fjár til sviða og deilda verði skýrð fyrir nýju starfsfólki (og því starfsfólki sem fyrir er).
- Skýra þarf stöðu starfsfólks frá löndum utan Schengen-samstarfsins og bæta verkferla í kringum ráðningu þess.
- Skýra þarf stöðu doktorsnema innan háskólasamfélagsins, hvenær þeir teljast til starfsfólks og hvenær ekki, t.d. hvað varðar setu í stjórn stofnana og önnur störf sem tilheyra starfslýsingu fastráðins akademísks starfsfólks.
Faglegt sjálfstæði Háskólans
- Gera þarf stjórnvöldum ljóst að þýðing HÍ fyrir samfélagið hvílir á faglegu sjálfstæði hans. Tími er kominn til að tryggja fjármögnun skólans til langs tíma og í skjóli fyrir hugdettum stjórnmálafólks.
- Tryggja þarf að hagsmunir HÍ séu ætíð í fyrirrúmi hvað varðar húsnæði á háskólasvæðinu.
- Tryggja þarf hagsmuni HÍ og háskólafólks hvað varðar umsýslu með rafræn gögn, vistun þeirra, eignarhald og notkun.
Kennslumál
- Útfæra þarf möguleikann á að ráða fólk í akademískar stöður með megináherslu á kennslu (eins og nefnt er í stefnuplagginu HÍ26).
- Hafa þarf vakandi auga fyrir samstarfi hvað varðar námsframboð og ná fram samlegðaráhrifum.
- Finna þarf lausn á því eilífðarmáli að draga úr vægi deildarmúranna/sviðsmúranna margfrægu; nýtilkomið örnám getur komið sér vel þar.
- Hugsa þarf ofan í kjölinn hvaða breytingar gervigreind hefur í för með sér m.t.t. hlutverks menntunar almennt og æðri menntunar sérstaklega.
- Gæta þarf þess að fjarnám sé vandað og taka á spurningunni um tilfallandi upptökur í kennslustundum.
- Gæta þarf þess að fjarnám komi ekki niður á velsæld háskólasamfélagsins.
Kjaramál
- Gæta þarf að kjaramálum doktorsnema, m.a. með því að skýra og staðla ráðningarsamband doktorsnema á styrk við HÍ.
- Stytting vinnuvikunnar verði innleidd í akademíunni sem hluti af starfsumhverfi og vinnustaðarmenningu.
- Unnið verði gegn kulnun og örmögnun með fræðslu um vörn gegn áreiti og aðferðir til að vera ekki „alltaf í vinnunni“, t.d. hvað varðar samskipti við nemendur.